Sirrý og Óskar Rotating Header Image

Gleðilegt ár …

Hæhæ og gleðilegt ár!!  Já við erum aldeilis ekki búin að vera dugleg að halda einhverju lífi í þessu bloggi en ég ætla að reyna smá fyrir þá sem hætta hingað inn þegar netrúturinn er alveg að verða búinn.  Við erum búin að vera á fullu síðan við komum út aftur í janúar, eftir æðislegt frí heima um jólin.

Sigríður í bollubakstriSigríður ánægð með góðan árangur í bollubakstri !

Ég er búin að „klára“ mastersritgerðina mína.  Hún situr núna hjá nefndinni minni og ég ver hana 19. mars.  Vonandi verða ekki gerðar of miklar athugasemdir!!  Óskar er kominn á fullt með sitt verkefni líka þannig það er búið að vera mikið um kaffi og lyklapikk hér á þessum bæ undanfarið.  Svo kenni ég einn tíma í Greiningu Burðarvirkja í viku til þess að fá smá kontakt við alheiminn ;)

Svo er Spring Break í næstu viku.  Fyrir þá sem muna þá keyrðum við til Miami síðasta vor.  Í þessu sinni verður bíllinn skilinn eftir í the Midwest og stefnan tekin í flugvél suður til Mexikó!!  Við ætlum að sleikja sólina í Cancun í fimm daga og reyna að slaka aðeins á og hlaða rafhlöðurnar.  Ég er orðin SVO spennt enda búin að pakka í hausnum 36 sinnum nú þegar!!  Við verðum á einhverju „All inclusive“ við ströndina þannig dagskráin hljóðar upp á borða-tana-borða-tana-borða-dansa…eða eitthvað þannig.  Í fyrsta skiptið í langan tíma er ég ekki búin að fjárfesta í ferðahandbók (þó ég lofa engu) og enginn menningardagskrá er í pípunum.

Annars er nú ekkert meira að frétta.  Veðrið er búið að vera fínt hér (allavega í samanburði við síðasta vetur).  Ég er nú farin að hlakka til vorsins (einhvern tímann í lok apríl þeas!!).  Við erum búin að vera að reyna að sitja inn einhverjar myndir þrátt fyrir fáar bloggfærslur.

Ég bið kærlega að heilsa öllum.  Kossar og knúsar frá da UP. xoxox

Þakkargjörð

Hæhæ!! Það er nú ekki mikið að frétta hjá okkur hérna í Hancock… en ég verð nú að reyna að halda þessu bloggi á lífi !! Við erum bara búin að vera að skólast í nóvember.  En við skelltum okkur til Appleton í smá Þakkargjörðar-ferð.  Ómögulegt að vera eina fólkið að hanga hér !!  Við fórum aðallega í verslunartilgangi.  Náðum meiri segja að *næstum* því klára jólainnkaupin með smá óþarfa (náttúrulega !!!).  Við gistum eina nótt í sömu káteu og síðast og nutum þess að vera í pinkupons fríi !

Svo var Thanksgiving á fimmtudaginn síðast liðin.  Ég er náttúrulega ögn geðveik og keypti eitt stykki 5 kílóa kalkún !  Hann var eldaður með „all the trimmings“ (að undanskildu green bean casserole, sem mér finnst bara ekkert sérstök).  Við vorum í eldhúsinu mest allan daginn.  Og horfðum á Green Bay rústa the Lions !!! Kalkúnninn var fullkomin, þrátt fyrir eðlilegt stress um að hann yrði þurr.   En við eigum svo mikinn afgang að ég held að við förum að breytast í kalkúna mjög fljótlega …

Annars erum við farin að undirbúa jólin.  Tókum þá ákvörðun að skreyta um helgina enda fyrsti í aðventu í dag.  Þetta er nú ekki mikið skraut en dugar í bili.  Það snjóaði ögn í nótt og snjórinn er ekki enn horfinn, þannig maður er farin að undirbúa sig andlega fyrir veturinn sem er að koma hér !

Settum inn einhverjar myndir ykkar til skemmtunar.  Svo vil ég nú bara minna alla á að við erum að koma heim eftir rúmlega 3 vikur !!!  Við erum svo spennt !!!!! Fyrir þá sem eru ekki með ALLT á hreinu þá er hittingur bæði í sundlauginni á Seltjarnarnesi og í bænum á Þorláksmessu !!

Kossar og knúsar frá da UP

xoxoxoxox

Hæhæ!! Það er nú ekki mikið að frétta hjá okkur hérna í Hancock… en ég verð nú að reyna að halda þessu bloggi á lífi!! Við erum bara búin að vera að skólast í nóvember. En við skelltum okkur til Appleton í smá Þakkargjörðar-ferð. Ómögulegt að vera eina fólkið að hanga hér!! Við fórum aðallega í verslunartilgangi. Náðum meiri segja að *næstum* því klára jólainnkaupin með smá óþarfa (náttúrulega!!!). Við gistum eina nótt í sömu káteu og síðast og nutum þess að vera í pinkupons fríi!

Svo var Thanksgiving á fimmtudaginn síðast liðin. Ég er náttúrulega ögn geðveik og keypti eitt stykki 5 kílóa kalkún! Hann var eldaður með „all the trimmings“ (að undanskildu green bean casserole, sem mér finnst bara ekkert sérstök). Við vorum í eldhúsinu mest allan daginn. Og horfðum á Green Bay rústa the Lions !!! Kalkúnninn var fullkomin, þrátt fyrir eðlilegt stress um að hann yrði þurr. En við eigum svo mikinn afgang að ég held að við förum að breytast í kalkúna mjög fljótlega …

Annars erum við farin að undirbúa jólin. Tókum þá ákvörðun að skreyta um helgina enda fyrsti í aðventu í dag. Þetta er nú ekki mikið skraut en dugar í bili. Það snjóaði ögn í nótt og snjórinn er ekki enn horfinn, þannig maður er farin að undirbúa sig andlega fyrir veturinn sem er að koma hér!

Settum inn einhverjar myndir ykkar til skemmtunar. Svo vil ég nú bara minna alla á að við erum að koma heim eftir rúmlega 3 vikur !!! Við erum svo spennt !!!!! Fyrir þá sem eru ekki með ALLT á hreinu þá er hittingur bæði í sundlauginni á Seltjarnarnesi og í bænum á Þorláksmessu !!

Kossar og knúsar frá da UP

xoxoxoxox

Loksins

Við skelltum okkur í afmælis ferð til Chicago 7.-10. október. Við keyrðum niðureftir og gistum á Ohio House sem er hálfgert vegamótel sem er samt í göngufjarlægð frá miðbænum. Mótelið var svona lala en það sem mestu máli skipti að það var ódýrt og bílastæðið var frítt. Strax eftir að við komum var stefnan tekin á Navi Pier, þar sem sumarvertíðin var búin (tívolíð lokað) rölltum við út á enda og nutum úsýnisins yfir borgina og Lake Michigan.

Afmælisbarnið á Navi Pier

Afmælisbarnið á Navi Pier

Um kvöldið fórum við út að borða á stað sem heitir Giordano’s Pizza, sem er einn af aðal Pizza stöðunum í Chicago, allavega samkvæmt Travel Channel. Við þurftum að bíða í næstum klukkutíma eftir borði en biðin var þess virði.

Afmælisbarnið að bíða eftir borði á Giordano's Pizza

Afmælisbarnið að bíða eftir borði á Giordano’s Pizza

Annar dagurinn var tekin snemma, við borðum morgunmat á Lou Mitchell’s diner. Næst var það Sears Tower, sem heitir víst núna Willis Tower… Allavega við skelltum okkur upp á 103. hæð og út í kassa sem er utan á húsinu með gler gólfi.

Smá ógleði að horfa niður

Smá ógleði að horfa niður

Eftir það gerðumst við voða menningarleg, rölltum um og skoðuðum m.a. upphaf þjóðvegar 66 og listasafnið. Um kvöldið borðuðum við svo á Cyrano’s Bistrot sem var mjög góður franskur veitingastaður. Eftir það var svo hápunktur ferðarinnar: Blue Chicago, aðal blúsbarnum í Chicago. Hann er algjör hola en þarna troða upp klassa búsarar flest kvöld vikunnar og hann stóð vel undir nafni.

Föstudagurinn var aðal dagurinn, þá fórum við á The Magnificent Mile. Þetta er aðal verslunar mílan í Chicago. Við eyddum deginum í búðarráp, þó aðalega til að skoða. Um kvöldið fórum við svo út að borða á Volare sem var rosalega góður ítalskur staður. Hann var ekki mjög dýr en mjög vinsæll þannig við þurftum að bíða í næstum klukkutíma eftir borði þó við ættum pantað. Á leiðinni heim enduðum við svo á Írskum pöbb, smá Celtic stemming.

Það eru komnar inn einhverjar myndir af þessu, verst að myndavélin gleymdist hluta ferðarinnar.

Október er annars búinn að vera fljótur að líða. Mastersverkefnin eru farin að taka meiri og meiri tíma þannig við erum að reyna að vinna okkur í haginn til að geta tekið almennilegt jólafrí heima.

Eins og sannir Íslendingar verðum við aðeins að minnast á veðrið. Það er ekki enn byrjað að snjóa 7,9,13 og hitinn er búinn að vera langt yfir meðaltali hingað til. Við vonum að þetta endist eitthvað áfram, maður saknar þess allavega ekki að þurfa að skafa á morgnanna.

Afmælis

Jæja þá er Afmælisvikan HAFIN!!  Ögn seinna þetta árið, en það er bara búið að vera aðeins of mikið í gangi í þessari viku.  En nú er allt að verða búið.  Ég fór í próf og var með eitt stykki deadline á proposal í gær og Óskar er búin að vera á haus með einhverja fyrirlestra.  Þetta er allt saman búið og gekk bara þokkalega og þá má snúa sér að bestu viku í heimi!!!  Reyndar eyðileggur Óskar þetta smá með því að fara í próf á mánudaginn en ég verð svosem að sætta mig við það ;)

Dagskrá Afmælisvikunar er stór-glæsileg.  Það verða ýmis activity í gangi fram að sunnudaginn, en það er náttúrulega STÓRI-dagurinn.  Hér verður kaka, matur, afmælisgjörningur, og meiri matur!! Það verður tekin smá pása á herlegheitunum á mánudaginn þegar Óskar fer í próf, en svo leggst ég í hvítvín og pökkun á þriðjudaginn samkvæmt „pökkunar-hefð“ á þessum bæ.  Á miðvikudaginn verður tekin stefnan á Chicago. Við verðum þar út afmælisvikuna og ætlum aldeilis að njóta CHI-town.  Deep dish pizza, Chicago Insititute of Art, jazz, Second City og Michigan Avenue eru nokkur dæmi um það sem er á dagskrá.  Við ætlum að menningast, versla (náttúrulega) og borða og borða og borða ;)

Annars er allt gott að frétta hjá okkur.  Það skrúfaði einhver fyrir góða veðrið og nú er bara kuldi hér.  20 stiga hiti í síðustu viku og nú erum við heppin ef við náum 10 stigum!!  En það er alltaf gaman þegar það haustar.  Litirnir eru að breytast og það er ekkert betra en að kosíast á kvöldin undir teppi þegar það fer að kólna!  Ekki slæmt!!

Svo kannski eitt stykki frétt í lokinn.  Við komum heim um jólin!!!  Við erum búin að panta flug og lendum snemma á Þorlák (beint í bæinn með stoppi í sund fyrst!!) og verðum í 3 vikur!!  Ekkert smá spennt að fá að njóta hátíðirnar með fjölskyldunum okkar og íslenskum jólamat ;)

Xoxoxoxoxoxoxo Lovjús!

P.S. tveir dagar!!

On a stick

Hæhó!!!!  Jæja þá erum við komin aftur „Home Sweet Home!“  Við viljum þakka öllum fyrir æðislegt frí heima!!  Maður er bara strax farin að hlakka til næstu heimferðar….ég vona að það verði ekki alltof of langt í hana ;)

Allavega, við komum til Minneapolis á mánudaginn fyrir tveimur vikum.  Við tókum stutt stopp í the Twin Cities.  Fyrst skelltum við okkur á Minnesota State Fair, og ég get svo svarið það þetta var álíka stórt og Disneyland á flatarmáli !  En þar var ýmislegt að skoða og gera og borða.  Það voru dýr og landbúnaðartæki til sýnis.  Við sáum stærsta heitapottinn og stærsta svínið, Big Bill.  Svo voru ýmis tvívolítæki og leikir.  Það sem stóð upp úr var samt maturinn.  Allt sem þið getið ímyndað ykkur var til á spítu (on a stick) eða djúpsteikt en oftast bæði.  Big Fat Bacon var örugglega uppáhalds nafnið á bás sem ég sá.  En sjálf var ég hrifnust af Corn básnum!!  Við borðuðum og borðuðum svo lengi sem það var djúpsteikt eða dýft í smjör!

Svo var náttúrulega farið í Mall of America til að brenna þessum milljón kaloríum frá Fair-inu.  Og ekki má gleyma Whole Foods, en þar kaupum við Maldon salt og Siggi‘s Skyr!!!  Að lokum var lagt af stað til Houghton, nokkrum fatapokum þyngri!

Þar sem við fórum að finna fyrir withdrawl frá því að fá ekkert djúpsteikt í 2 daga, skelltum við okkur á Dickenson County Fair um Labor Day Weekend.  Óskar smakkaði sinn fyrsta corndog og ég fékk mér meira Corn on the Cob.  Þetta fair var aðeins viðráðanlegra og við skemmtum okkur bara ótrúlega vel.  Spurning hvort næsta sumarfrí fari ekki bara í það að elta svona Fair, ég leyfi mér að dreyma…

Það er búið að vera ótrúlega gott verður síðan við komum aftur til Houghton, sól og hiti.  Og við erum búin að reyna að njóta þess.  En skólinn byrjaði í síðustu viku fyrir okkur, viku fyrr fyrir alla hina ;)   Ég verð í einum áfanga í vetur en Óskar er í tveimur.  Við erum svo bæði að vinna í verkefnunum okkar.

Jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili.  Það eru einhverjar myndir komnar…nokkrar úr fyrstu vikunni okkar heima svo “týndist” myndavélin!!  Og svo eru myndir af Fair-unum okkar.  Hafið það gott. Kossar og knúsar…xoxoxox

P.S. niðurtalningin er hafin : 20 dagar!!!!

Endurfundir

Ég biðst nú afsökunar á blogg-leysinu en það er allt búið að vera svolítið kreisí hjá mér síðan við komum heim frá Puerto Rico..(og ekki bloggar Óskar!!)  En þið megið skamma mig í eigin persónu um helgina.  Við stefnum á Minneapolis eftir hádegi í dag, Mall of America á morgun, og flug á fimmtudaginn.  Við lendum á Kef klukkan 6.20 á föstudaginn og ég bíðst við að ég verð mætt í pottinn í Seltjarnarneslaug upp úr klukkan 11 ef einhver vill vera memm.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll og endilega látið heyra í ykkur.  Við erum með gömlu númerin okkar Óskar: 8666081 og ég: 8673419.  Kossar og knúsar.

Puerto Rico

Hæhæhæ !!! Þá erum við komin aftur til Hancock en því miður töskulaus !!  Ferðin gekk rosalega vel. Reyndar kannski svolítið langt ferðlag þar sem við vorum stopp í Atlanta í 8 tíma á báðum leiðum.  En við reyndum bara að slaka á og njóta þess að borða rándýran skyndó.  Við komum til San Juan seint um kvöldið síðasta sunnudag og skelltum okkur beint á spilavíti. Við svosem „gömbuluðum“ ekkert en ég var svo spennt fyrir fyrsta casino-inu mínu!  Við vöknuðum svo snemma á mánudaginn og skelltum okkur í sólbað og svo röltum við um The Condado (hverfið sem við gistum í) eftir hádegi.  Ég verð svosem að viðurkenna að ég var einn stresshnútur allan daginn.  Við fórum svo í cokteil boð í boði ráðstefnunnar og svo á æðislegan kúbanískan stað við hótelið.  Það var nú ekki mikið sofið um nóttina enda fyrirlesturinn minn klukkan 9:30 á þriðjudagsmorguninn.   Loksins kom að því og þetta gekk bara vel.  Ég hélt í fyrstu að ég myndi deyja en hægt og rólega fór ég að sjá fólkið í salnum en ekki bara móðu.  Svo var þetta bara búið.  Ótrúlegt allt þetta stress og svo bara búið.

NæsOld San Juan

Ráðstefnan var bara fram á fimmtudag.  Við fórum á fyrirlestra og nutum svo Puerto Rico eftir á.  Það sem stendur upp úr er maturinn.  Ég hef aldrei borðað svona frumlegan og góðan mat.  Ég er alveg húkkt.  Djúpsteiktar plantainur, hrísgrjón og baunir, ferskir ávaxtadrykkir, allskonar kjúlli og svínakjöt.  Uppáhaldið mitt er mofongo, djúpsteikt stöppuð plantaina og kjúlli.  Ég er búin að panta mér Puerto Rican Cooking á Amazon ;)   Eins og í venjulegum sólarfríum þá skelltum við okkur nokkrum sinnum í sólbað.  Svo var æðislegt að skoða gamla-bæinn.  Það er veggur sem fer næstum því allan hringinn og svo eru tvo stór virki og allskonar búðir og veitingastaðir.  Við vorum greinilega ekki á high-season því það voru engir markaðir eða neitt eins og var lofað í bókinni (sem Óskar gleymdi heima by the way !!!!).

Sirrý og kagginn í regnskóginum ...Sirrý og tryllitækið í regnskóginum

Á föstudeginum leigðum við okkur bíl og keyrðum til Loquillo og Fajardo.  Við ákvöðum að skella okkur í regnskóginn sem var æðislegur.  Ég hef aldrei séð svona regnskóg áður, ótrúlegt. Á leiðinni aftur á hótelið stoppuðum við á  einu af fjölmorgum vegstöndum (kiosk) sem voru að selja allskonar kjöt steikt á staðnum yfir mössuðum opnum eldum.  Við tölum hvorugt spænsku og vertinn talaði ekki ensku þannig ég bað um einn pollo og einn carne.  Pollo-inn var æðislegur, kjúlli á teini bbq-aður fullkomnlega.  Carne-inn var frábær en aðeins frumlegri sem sagt kjöthakk djúpsteikt innan í plantainu (Alcapurria),  Nammi!!!  Við lukum svo fríinu í sólbaði og rölti og enn þá meiri mat á laugardeginum.  Svo mæli ég eindregið með gumbó-inu (Asopao) hjá honum Angel á Ashford avenue.

Þetta lítur nú ekkert voðalega pro út, en maturinn var góðurKiosk básinn

Svo var lagt í hann snemma á sunnudaginn og við komum aftur í rigninguna og rokið í Hancock um miðnætti töskulaus.  Við erum sem sagt ennþá að bíða eftir töskunum en ég er búin að fá loforð um að þær koma í dag.  We will see…. Annars erum við bara að reyna að koma okkur í rútínu sem gengur svona smá erfilega.  Mig dreymir um mofongo og asopao og endalausar strendur.

Jæja, romsan komin ;)   Hlýjustu kveðjur úr Hancock.  Kossar og knúsar. xoxox

Loksins komið sumar !

Ég má nú bara fara að skammast mín (og Óskar líka !!).  En hér er loksins smá blogg-færlsa fyrir þá örfáu sem nenna enn þá að kíkja á síðuna ;)   Sumarið er loksins komið til Hancock.  Það er búið að vera óvenjulega kalt hér í maí og byrjun júní, samkvæmt veðurfræðingnum í kvöldfréttunum.  Allt breyttist á síðasta föstudag en þá kom loksins 25 stiga hiti og það er búið að haldast alla helgina.  Við fundum Hancock Beach and Recreation Area og erum búin að skella okkur þangað með teppi og bækur í nokkra tíma á laugardag og sunnudag.  Óskar segir að ég sé komin með ágætis „base-tan“ en þetta er bara byrjunin.

Við fjárfestum okkur í hjólum en vegna veðurs höfum við ekki verið alveg verið þau duglegustu að brúka þau en það breyttist allt um helgina og bíllinn var ekki hreyfður (nema þegar það sárvantaði mintu í mojiotinn!).  En ég verð nú að viðurkenna að mér finnst ekki alltaf gaman að hjóla, sérstaklega þegar maður heldur maður sé komin upp á topp og þá er annað eins eftir!!!  En þetta er mjög brekótt svæði, a.m.k. finnst mér það!!

Svo erum við farinn að undirbúa Puerto Rico ferðina.  Við förum á sunnudaginn og verðum í viku.  Ég er með fyrirlesturinn minn á þriðjudaginn en svo er það bara easy-street eftir það.  Við erum búin að vera að stúdera ferðabókina og reyna að átta okkur aðeins á þessu.  Ég get samt lítið hugsað um þetta fyrr en eftir þriðjudaginn í næstu viku þar sem ég fæ stórann stress hnút í magann við tilhugsunina að halda fyrirlestur ;)   En hann hlýtur að líða hjá !!! Og þetta verður púra snilld.

Jæja best að snúa sér að vinnunni.  Heitustu kveðjur frá Hancock. xoxoxo

p.s. útlitið á síðunni er í vinnslu

Vor


Gleðilegt sumar!!  Rosalega er langt síðan ég hef bloggað.  Það er ótrúlegt hvað manni finnst ekkert vera að frétta þar sem þetta er náttúrulega bara allt orðið rútína hjá okkur.  Við erum núna komin í sumarfrí.  Ég er ekkert smá glöð, mest út af því að ég er ekki lengur með Office Hours:)

Við tókum okkur bara frí um helgina og nutum þessa að vera ekki með neitt að gera.  Við skelltum okkur til Marquette svona til þess að komast aðeins frá Houghton.  Svo fór restin af helginni í göngutúra og matargerð.  Rosalega er nú gott að geta slakað svona vel á eftir mjög erfiða önn.

Ég skilaði loksins ritgerðinni minni á miðvikudaginn í síðustu viku sem sumir hafa kannski heyrt mig grenja um í vetur.  Ég er að fara að halda erindi á ráðstefnu í sumar um verkefnið mitt.  Þetta er Americas Conference of Wind Engineering í júní í San Jaun, Puerto Rico.  Ég er að reyna að draga Óskar með mér en hann veit ekki alveg hvernig hann verður að vinna í sumar.  En við verðum allavega hér bæði í Hancock að vinna fyrir (og með) prófessorunum okkar.

Við erum annars bara ótrúlega hress hér.  Veturinn er loksins að fara…þrátt fyrir blizzard hér á fyrir tveim vikum.  Ég vona að þetta sé loksins að fara!!  Ég get ekki mikið meira!!  Fólk er nú alltaf að ljúga því að mér að sumarið sé æðislegt hér….ég er orðin svo brennd á þessum vetri að ég á erfitt með að trúa því!  En verð að halda í vonina!!!

Jæja, mér dettur svosem ekkert meira í hug.  Ég smelli mér reyndar til Íslands í stutt stopp 9. maí og verð í tíu daga.  Verkefnið mitt er í smá pásu akkúrat á þessum tíma.  Við ætlum að skella okkur til Minneapolis á fimmtugdaginn í smá menningarferð áður en ég fer heim. En við stefnum svo á gott stopp í ágúst, sem verður æðislegt ;)

Hlýjustu kveðjur úr Hancock. xoxoxox

Spring Break 2. og 3. hluti


Við komum til Miami rétt eftir  hádegið á mánudeginum og þar sem við gátum ekki check-að inn fyrr en klukkan þrjú ákváðum við að leggja bílnum og rölta um South Beach. Við byrjuðum á að skoða Lincoln Road Mall sem er göngugata með öllum þessum helstu búðum. Við vorum mætt á hótelið á slaginu, til að losa okkur við hafurtaskið svo var stefnan sett beint á ströndina þar sem við náðum tveim góðum tímum af tani.

Kvöldinu eyddum við í að labba Ocean Drive, sem er gatan næst ströndinni. Þar er allt morandi í veitingastöðum, sem því miður buðu allir upp á svipaða rétti. Við vorum hálf lúin eftir ferðalagið þannig kvöldið varð hálf stutt.

Næstu daga vöknuðum við snemma og drifum okkur á ströndina þar sem sólin var sleikt fram eftir degi. Annað kvöldið var ákveðið að kanna aðeins næturlífið, við fórum á bar sem bauð upp á lifandi tónlist. Við fengum okkur svona stóra mojito (kannski eins og 3 venjulegir), sem er ekki frásögu færandi nema hann kostaði 32 dollara, sem er hátt í 4.000 kr íslenskar á nýja genginu. Okkur var búið að finnast South-Beach frekar dýrt fram að þessu en þetta fór alveg með það. Eftir þetta var haldið aðeins fastar um pyngjuna.

Á miðvikudeginum túristuðumst við aðeins og fórum til Little Havana og í Coconut Grove. Little Havana reyndist vera nokkrar „blocks” af þriggja akreina einstefnugötu þar sem ekkert spennandi virtist vera þannig við létum nægja að keyra í gegn. Coconut Grove var aðeins meira spennandi, við lögðum bílnum og röltum um voða vinalegt hverfi og vorum fegin að komast á veitingastað sem bauð upp á eitthvað annað en staðlaðan South Beach mat.

Síðasta kvöldinu var eytt í Lincoln Road Mall, við fundum ágætis veitingastað og nutum þess að rölta um í án úlpu og húfu. Sirrý var búin að sjá Lil‘ Wayne á öðru hverju götuhorni alla ferðina þannig það var kærkominn hápunktur þegar við sáum Malcom in the Middle sjálfan á rölti um Lincoln Roal Mall…

Heimleiðin var tíðindalaus, það var rigning frá því við komum inn í Georgia fylki og norður til Indiana. Við stoppuðum í Chicago og kíktum aðeins í IKEA og Woodfield-Mall áður en við keyrðum aftur inn í frostið og veturinn á da UP

Samtals vegalengd: 6182 km